Orkukostnaðurinn næst lægstur á Akureyri

Byggðastofnun hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu á ársgrundvelli. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161 m2 að grunnfleti. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrá um áramótin.

Ef horft er til heildarkostnaðar, þá er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli á orkuveitusvæði RARIK, 320.123 krónur. Heildarkostnaðurinn í þéttbýli er hæstur á Grundarfirði, Neskaupsstað og Vopnafirði, 264.686 krónur. Lægstur er hins vegar heildarkostnaðurinn á Sauðárkróki, 146.260 krónur. Hæsta verðið er því 119 % hærra en lægsta verðið.

Akureyri er í næst neðsta sæti listans,  heildarkostnaðurinn við raforkunotkun og húshitun þar er samtals 152.909 krónur á ári.

Lægst er rafmagnsverðið á Akureyri, 66.278 krónur á ári. Kostnaður vegna hitaveitu er 86.631 króna.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast