Vegna ótryggs veðurútlits hefur stjórn Orkugöngunnar tekið þá ákvörðun að fresta göngunni sem átti að fara fram á laugardaginn um óákveðinn tíma. Þetta á við um allar vegalengdir, 60 km - 20 km - 7 km og 1 km. Í fréttatilkynningu kemur fram að nýr göngudagur verði gefin út síðar.