Orkugangan - Lengsta skíðaganga landsins

Buch-Orkugangan er 60 km skíðaganga sem haldin verður á laugardaginn.
Hefst gangan við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit og lýkur henni í nágrenni Húsavíkur.
Er þetta lengsta skíðagangan hér á landi og gefur hún stig til Íslandsgöngunnar.
Orkugangan er haldin sameiginlega af Húsvíkingum og Mývetningum og hefur verið haldin árlega síðan árið 2007. 
Gengið verður að mestu um ósnortið land, þar sem sjá má margar náttúruperlur sem og svæði sem jarðskjálftar og eldsumbrot hafa mótað og má víða enn sjá merki um þá orku sem býr í þessu svæði.

Leiðin er troðin fyrir þátttakendur og lagt verður spor alla leið.
Lítið er um erfiðar brekkur og er lækkunin á leiðinni einungis um 200 metrar.
Það er álit margra að fallegri leið sé vandfundin.
Drykkjarstöðvar verða á 10 km. fresti.


Sama dag verða 20, 7 og 1 km. gengnir á Reykjaheiði, ræst frá svæði gönguskíðamanna í nágrenni Húsavíkur og hefjast þær göngur kl. 13
Troðin verður braut fyrir keppendur. Þátttökuverðlaun fyrir alla sem klára.
Sameiginleg verðlaunaafhending og kaffihlaðborð verður svo á Fosshótel Húsavík eftir gönguna.
Að kvöldi laugardags kl. 20 verður Vilborg Arna pólfari með erindi sitt “Lífs-spor sóló á Suðurpól – kraftur markmiða og drauma”


Allar nánari upplýsingar og rafræna skráningu er að finna á vefsíðu Orkugöngunnar á slóðinni www.orkugangan.is eða í netfang info@orkugangan.is

Nýjast