Opnar útibú Listfléttunnar í Reykjavík

Sigurður Guðmundsson  Mynd:Karl Eskil
Sigurður Guðmundsson Mynd:Karl Eskil

 Sigurður Guðmundsson athafnamaður á Akureyri hefur keypt listmunaverslunina Listfléttuna á Akureyri og ætlar á næstunni að opna útibú í Reykjavík.

„Já og það vill svo skemmtilega til að Listfléttan er við hliðina á Viking versluninni í Hafnarstræti á Akureyri. Ég hef tröllatrú á slíkri verslun og innan skamms verður opnuð önnur Listflétta í Reykjavík, sem örugglega á eftir að vekja athygli, án þess að ég vilji tjá mig nánar um það mál akkúrat núna.“

Rekstur Sigurðar er umfangsmikill

„Ég er núna með átta aðskilin fyrirtæki, flest þeirra eru þó á sviði ferðaþjónustu. The Viking ferðamannaverslanirnar eru sex talsins, þær eru í Reykjavík, Ísafirði og svo hérna á Akureyri. Þá er ég með heildverslanir sem sjá aðallega um innflutning og síðast en ekki síst er í körfunni lítil og rótgróin kjörbúð í Reykjavík sem heitir Vísir. Síðan kem ég að rekstri kaffihúss í Lystigarðinum á Akureyri. Það verkefni er einstaklega skemmtilegt og gefandi, enda er kaffihúsið á einum fallegasta stað landsins.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast