Opnar í Hlíðarfjalli á laugardaginn

Skíðaáhugafólk getur farið að dusta rykið af skíðunum.
Skíðaáhugafólk getur farið að dusta rykið af skíðunum.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar á laugardaginn kemur kl. 10:00. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að allar fjórar neðri lyfturnar verði opnaðar en ekki er nægur snjór til að opna í Strýtuna strax. Guðmundur segir sölu á árskortum fara vel af stað. „Salan tekur hins vegar alltaf langmestan kipp þegar fólk veit hvenær skíðsvæðið opnar þannig að það ætti að vera nóg að gera í sölunni fram að helgi,” segir Guðmundur.

throstur@vikudagur.is

Nýjast