Opinn íbúafundur um skipulag miðbæjarins

mynd/akureyri.is
mynd/akureyri.is

Opinn íbúafundur um nýtt skipulag miðbæjarins á Akureyri verður haldinn í fundarsal á 4. hæð í Ráðhúsi Akureyrar á morgun, klukkan 17.  Hönnuðir miðbæjarskipulagsins eru Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu ehf., og Ómar Ívarsson, skipulagsfræðingur hjá Landslagi ehf. Á fundinum mun Logi Már kynna skipulagslýsingu og fyrstu drög nýs miðbæjarskipulags. 

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér fyrstu hugmyndir að nýju miðbæjarskipulagi

Nýjast