Lassi Heininen flytur í dag opinn fyrirlestur við Háskólann á Akureyri um norðurslóðamál undir yfirskriftinni: New Arctic Geopolitics toward more global cooperation, or back to national approach?
Í fyrirlestrinum mun Lassi Heininen fjalla um samstarf milli ríkja á norðurslóðum og gagnvart öðrum heimshlutum og hvernig þetta hefur þróast á undanförnum árum. Þá mun hann fjalla um almennt aukinn áhuga á norðurslóðum sem tengist m.a. loftslagsbreytingum, fyrirsjáanlega bættum samgöngum um heimshlutann og betra aðgengi að auðlindum hans. Þannig hafa norðurslóðir öðlast nýtt hlutverk á sviði heimsstjórnmálanna sem þarf að bregðast við á ýmsa lund.
Dr. Lassi Heininen er dósent við University of Lapland í Finnlandi og er formaður Northern Research Forum (NRF) en skrifstofa þess er rekin við RHA Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri.
Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og hefst kl. 12:00 í stofu M102 að Sólborg v/Norðurslóð.