Opin samverustund verður í Glerárkirkju á Akureyri í kvöld vegna flugslyssins á mánudaginn. Kirkjan verður öllum opin. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir hefur umsjón með stundinni og Eyþór Ingi Jónsson sér um tónlist. Sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum verða til staðar. Samverustundin hefst klukkan 20 og eru allir velkomnir.