Opið hús í Lögmannshlíð

Lögmannshlíð. Mynd/Akureyri.is
Lögmannshlíð. Mynd/Akureyri.is

Hið nýja og glæsilega dvalarheimili Lögmannshlíð við Vestursíðu á Akureyri verður opið almenningi í dag milli kl. 16.00-18.00. Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlist frá Snorra Guðvarðarsyni og félögum. Nýja dvalarheimilið er hið fyrsta á Íslandi sem er að fullu hannað í anda Eden-hugmyndafræðinnar þar sem áhersla er lögð á sjálfræði, virðingu, umhyggju, væntumþykju og gleði. 

Nýjast