Tíu ár eru liðin síðan Kárahnjúkavirkjun var samþykkt og myndin In memoriam? var gerð fyrir erlendan markað um Kárahnjúkavirkjun og svæðið norðan Vatnajökuls. Myndin var fyrir skömmu sýnd í Reykjavík og í kvöld fimmtudagskvöld verður myndin sýnd í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Ómar Ragnarsson framleiðandi myndarinnar verður viðstaddur sýninguna í Hofi, flytur inngang og eftirmála í bundnu og óbundnu máli og svarar spurningum ef svo ber undir.
In memoriam er algeng grafskrift á legsteinum, en sett var spurningarmerki við þetta heiti myndarinnar þegar hún var gerð við upphaf framkvæmda.
Í myndinni koma fram ýmis ný atriði, sem ekki hefur áður verið fjallað um hér á landi.
Myndin var send á tvær kvikmyndahátíðir erlendis og fékk önnur af tveimur aðalverðlaunum alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Canavese á Ítalíu 2004.