XG-Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur fyrir margt löngu birt stefnu sína um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána sem hann vill koma á með setningu neyðarlaga strax og hann kemst til nægilegra áhrifa og vill þá gera það eigi síðar er 17. júní í ár. Miða þarf leiðréttinguna við 1. nóvember 2007, þegar almenn verðtryggð húsnæðislán urðu ólögleg hér á landi, þegar að MiFID reglugerð EES/ESB var lögleidd. Þetta þýðir að allir, sem að áttu verðtryggð húsnæðilán eftir þessa dagsetningu munu fá leiðréttingu til dagsins í dag í réttu hlutfalli. Það á líka við um þá, sem að tóku lán sín fyrr eða þá, sem að greiddu upp lán sín eftir þann tíma. Allir munu fá leiðréttingu sinna mála frá 01.11.2007 þegar vísitala neysluverðs var 278,1 stig. Undanbragðalaust.
Bankarnir eða fólkið
Seðlabankinn mun stofna sérstakan sjóð innan sinna eigin veggja, sem að kaupir öll verðtryggð húsnæðislán og skuldbreytir þeim eða endurgreiðir hina ólöglegu ofgreiðslu í tilfelli þeirra, sem þegar voru búnir að gera upp. Hann mun gefa út ný skuldabréf skuldunautum til handa til langs tíma til þess að stilla greiðslubirðina af við greiðslugetuna. Nýju bréfin verða færð niður til þess, sem að þau hefðu verið 01.11.2007 og munu bera 7,65% fasta vexti. Með því að Seðlabankinn láni sjóðnum á 0,01% vöxtum mun það taka sjóðinn 9 ár að komast í jafnvægi. Það er vaxtamunurinn, sem mun greiða upp þessa leiðréttingu. Þannig rennur þessi mismunur því til fólksins en ekki til bankanna, sem hefði verið ef ekkert væri að gert. Stimpil og uppgreiðslugjöld vegna aðgerðanna verða afnumin og aðgerðum sýslumanna frestað í tvö ár á meðan leiðréttingin gengur yfir.
Ekki verðbólguhvetjandi
Hinn nýji sjóður mun greiða lánardrottnunum, eigendum gömlu bréfanna, bréfin að fullu. Þannig fá þeir allt sitt strax og er vandi ÍLS þar með leystur, en með því að þeim er gert að með sérstakri bindiskyldu að geyma fé sitt í Seðlabankanum, þá mun það fé ekki fara í umferð fyrr en Seðlabankanum þóknast það með stjórn sinni á peningamagni í umferð til þess að ráða við verðbólguna.
Þetta er eina haldbæra lausnin
Það þarf ekki að skoða eða leita eða kortlegja eitt eða neitt. Það er búið að gera það. Þetta er þaulreynd og þekkt aðferð, sem að t.d. lesa má um á Wikipedia.com undir TARP, HAMP og Quantative easing eða á www.xg.is undir Kynslóðasáttin. Þetta er eina lausnin sem að fær eða til er án þess að hækka skatta á alla alþýðu manna eða að það kosti stórfé sem að annaðhvort er ekki til eða þarf að nota í svo margt annað. Það er afar mikilvægt að fólk skilji og geri sér fulla grein fyrir þessu stórmáli, sem svo margir þjást undan og ef að það vill að þessum leiðréttingum verði komið á fyrir sig, þá verður það að kjósa Hægri græna með því að setja X við G 27. apríl n.k. Það lífsspursmál fyrir fólkið.
Kjartan Örn Kjartansson
Höfundur er varaformaður Hægri grænna, flokks fólksins
og í 1. sæti listans í Reykjavík norður
Veffang: www.xg.is