Akureyrarbæ bárust fjögur tilboð í breytingar á húsnæði gamla húsmæðraskólans við Þórunnarstræti 99. Akureyrarakademían hefur haft þar aðstöðu undanfarin ár, en í framtíðinni verður í húsinu skammtímavistun fatlaðra. Því þarf að ráðast í viðamiklar endurbætur á húsnæðinu, sem Guðjón Samúelsson teiknaði. Húsnæðið var vígt árið 1945.
Lægsta tilboð barst frá L&S verktökum, 163 milljónir króna, eða 111 % af kostnaðaráætlun bæjarins. Nokkuð hefur verið deilt um hvort húsnæðið henti fötluðu fólki, en Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans hefur sagt að húsnæðið henti slíkri starfsemi afskaplega vel.
karleskil@vikudagur.is