Fimm sóttu um stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 6. maí sl. Meðal umsækjenda er þingkonan fyrrverandi Ólína Þorvarðardóttir og Sigrún Stefánsdóttir fyrrum dagskrástjóri RÚV og doktor í fjölmiðlafræði. Aðrir umsækjendur eru Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, Ingunn Björnsdóttir, lyfjafræðingur og Rögnvaldur D. Ingþórsson, heimspekingur.