Eineltisvandi innan Slökkviliðs Akureyrar hefur verið langvarandi og hefur bærinn meðal annars gripið til þess ráðs að fá sálfræðinga til að greina vandann. Slökkviliðsstjórinn hefur verið í leyfi frá störfum og tveir aðrir starfsmenn hafa verið veikindaleyfi í langan tíma vegna málsins. Tveir til viðbótar fengu leyfi frá störfum í eitt ár vegna vandamálsins.
Í gær var tilkynnt að slökkviliðsstjórinn mætti til starfa á nýjan leik í dag, sem hann gerði. Þessi tilkynning kom slökkviliðsmönnum í opna skjöldu. Ársleyfi starfsmannanna tveggja rennur út um mánaðamótin og hefur verið unnið að gerð starfslokasamnings við þá. Í gær tilkynnti bærinn að viðræðum um slíkan samning væri hætt.
Þeir slökkviliðsmenn sem Vikudagur hefur rætt við í morgun vilja ekkert tjá sig um málið, en staðfesta að mikil ólga ríki á staðnum vegna þessa máls.
karleskil@vikudagur.is