Ökugerðið á Akureyri óskaði eftir aðstoð Sjóvár við kaup á svokölluðum ölvunargleraugum til notkunar í kennslu í Ökuskóla 3 sem hefur verið hluti af ökunámi frá árinu 2010 en þar er m.a. farið yfir öryggisatriði bílsins og akstur í hálku. Nemendur fá einnig að prófa veltibíl, kynnast mikilvægi bílbelta og læra rétt viðbrögð ef til bílveltu kemur.
Sjóvá hefur nú afhent ölvunargleraugun en með þeim geta nemendur ökuskólans upplifað hvernig sjón raskast við neyslu áfengis. Gleraugun samsvara 0,5 0,75 prómilla ölvun. Þó að áhrif áfengismagns séu einstaklingsbundin, gefa gleraugun góða hugmynd um hversu mikil áhrif neysla áfengis hefur á jafnvægisskyn, sjón og viðbragð ökumanns og auðvelt að skilja af hverju bannað er að aka undir áhrifum vímuefna.
Á meðfylgjandi mynd tekur Kristinn Örn Jónsson frá Ökugerðinu á Akureyri á móti gleraugunum frá Jóni Birgi Guðmundssyni svæðisútibússtjóra Sjóvár á Akureyri.