Ófremdarástand á tækjabúnaði Sjúkrahússins á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson
Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson

Brýn þörf er fyrir endurnýjun margra veigamikilla tækja á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar má nefna almenn myndgreiningartæki, skurðtæki, nýjar vökvadælur og tölvubúnað. Þetta kemur fram í pistli Sigurðar E. Sigurðarsonar framkvæmdastjóra lækninga og handlækningasviðis sem hann skrifar á vef sjúkrahússins.

 

„Þeir fjármunir sem ætlaðir eru til tækjakaupa á fjárlögum næsta árs rétt sleppa til að greiða af þeim tækjum sem þegar hafa verið keypt. Því er nánast ekkert rými til endurnýjunar. Fjármagn til tækjakaupa á sjúkrahúsinu hefur verið skert verulega undanfarin ár og samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013 er gert ráð fyrir að það verði óbreytt að krónutölu milli ára.“ Sigurður segir ennfremur að óskað hafi verið eftir viðbótarfjármagni til að mæta brýnustu þörfum.

„Að óbreyttu sjáum við fram á enn meira ófremdarástand í þeim málum. Upp á það ástand er ekki lengur hægt að bjóða, hvorki sjúklingum okkar né starfsfólki,“ segir Sigurður.

throstur@vikudagur.is

Nýjast