Sífellt fleiri einstaklingar leita árlega til Aflsins á Akureyri, samtaka um kynferðis-og heimilisofbeldi, vegna nýrra eða gamalla brota. Á milli áranna 2010 og 2011 var 60,4% aukning, sem er sama tala og mældist eftir ágústmánuð í ár. Það stefnir því í enn meiri aukningu fyrir árið 2012 en að jafnaði leita um 60-80 nýjir einstaklingar hjálpar til samtakanna á hverju ári. Blaðamaður Vikudags settist niður með þeim Önnu Maríu Hjálmarsdóttur og Jóhanna G. Birnudóttur, Jokku, sem starfa hjá Aflinu, þar sem þær töluðu opinskátt um kynferðis-og heimilisofbeldi á Akureyri.
Umræðan um kynferðisofbeldi er alltaf að aukast og að verða opnari, sem betur fer. Það sem okkur finnst hins vegar vera að breytast er að ofbeldið er sífellt að verða grófara. Heimilisofbeldi er orðið mun hættulegra og í kynferðisbrotamálum er t.d. orðið meira um að fólki sé byrlað lyf í þeim tilgangi að misnota það. Klámvæðingin hefur einnig haft sín áhrif. Þótt Netið sé á margan hátt frábært að þá er það stórhættulegt. Það hefur einhver brenglun átt sér stað á veginum í sambandi við kynferðismál og það er t.d. hægt að nálgast allskyns efni á Netinu sem eru hreinlega skaðleg fyrir fólk , segja þær.
Ítarlega er rætt við þær Önnu og Jokku í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.