Ófáar ferðirnar á slysadeildina á árum áður

Leifur Ægisson
Leifur Ægisson

„Ég er sáttur og hefði ekki viljað hafa þetta öðruvísi,“ segir Leifur Eyfjörð Ægisson kjötiðnaðarmaður sem lét af störfum hjá Norðlenska um nýliðin áramót, en hann hafði þá starfað hjá fyrirtækinu og forverum þess, Kjötiðnaðarstöð KEA og Pylsugerðinni óslitið í nær 48 ár

 Leifur sem fæddur er og uppalinn á Hjalteyri var framan af starfsævinni til sjós og hugurinn stefndi þangað, en meðhöndlun og vinnsla á kjöti varð ofan á.

Leifur fór fyrst á sjó 14 ára gamall og stundaði sjómennsku öll sumur með skólagöngu, var m.a. á síldarbátum og síðar millilandaskipum.Það var einmitt á meðan hann var að bíða eftir plássi á einu slíku sem hann kom við í Pylsugerð KEA sem var til húsa í Grófargili. Þar þekkti hann verkstjóra sem átti að heilsa lítillega upp á en heimsóknin leiddi til þess að Leifur hóf störf í Pylsugerðinni í byrjun febrúar árið 1965.

Leifur óheppni!

Leifur minnist þess að á fyrstu árunum hafi hann fengið viðurnefnið óheppni, enda voru smá skurðarslys ansi tíð og ferðirnar á slysadeildina þar sem gert var að sárum hans ófáar. „Ætli ég sé ekki með svona 50 spor í hendinni og framhandleggjunum, maður var sí og æ að skera sig í gamla daga, enda alltaf með hnífinn á lofti,“ segir hann.

Kandidatarnir á slysadeildinni tóku honum fagnandi enda gott að æfa saumaskapinn þegar Leifur mætti með sín skurðarsár á deildina. Skurðum fór svo fækkandi eftir því sem árin liðu og breytt vinnulag hafði í för með sér minni hættu á skurðarsárum.

Nánar er rætt við Leif í prentútgáfu Vikudags

Nýjast