Á laugardaginn kemur kl. 14.00 opnar Þórdís Árnadóttir myndlistarsýningu í Populus tremula á Akureyri. Um verkin á sýningunni segir listakonan: Þessi myndverk mín eru óður til lífsins, baráttu birtu og jafnvægis til að vera ríkjandi. Líkt og púsluspil þar sem hvert brot á sér vísan stað svo að heildarmynd stöðugleika verði náð. Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 19. maí frá kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.