Nýtt starf þróunarstjóra

Karl Frímannsson.
Karl Frímannsson.

Meirihluti bæjarráðs Akureyrar hefur skipað Karl Frímannsson fræðslustjóra tímabundið í eitt ár í nýtt starf þróunarstjóra starfsmannamála hjá Akureyrarkaupstað. Bæjarráð samþykkti tillöguna með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur, fulltrúa Vinstri hreyfingar græns framboðs. Hún mótmælir ráðningunni og segir í bókun að hún hafi fullan skilning á því að leysa þurfi flókin starfsmannamál innan bæjarkerfsins, en í ljósi þröngrar fjárhagsstöðu bæjarsjóðs geti hún ekki studd ráðninguna.

„Þetta fer alfarið gegn markmiðum bæjarstjórnar um opnari stjórnsýslu og faglegri vinnubrögð að auglýsa ekki nýjar stöður í æðstu stjórnlögum starfsmanna bæjarins. Þessi vinnubrögð fara gegn sannfæringu minni um bætta starfshætti við stjórnsýslu bæjarins. Ég minni á að í stefnuskrá L-listans var bæjarbúum lofað að öll störf hjá bænum yrði auglýst og þar er einnig sett fram markmið um hagræðingu í stjórnkerfi bæjarins með það fyrir augum að einfalda yfirstjórnina. Það veldur því vonbrigðum að horfið hafi verið frá þessum ágætu og faglegu markmiðum meirihlutans,“ segir Andrea.

Fulltrúar L-lista benda á að um tímabundna ráðningu sé að ræða og gangi hún því hvorki gegn reglum sveitarfélagsins né stefnu L-listans.

Hlutverk þróunarstjórans snýr að umbótum í starfsmannamálum bæjarins og eftirfylgni með mannauðsstefnu bæjarstjórnar í nánu samstarfi við starfsmannastjóra. Karl mun gegna starfinu til 15. maí á næsta ári.

Nýjast