Nýsköpun
Það felast mörg tækifæri í nýsköpun og tækni. Þau tækifæri þarf að nýta. Á Akureyri eru dæmi um störf sem unnin eru í fjarvinnu með aðstoð tækninnar. Í því felast dýrmæt lífsgæði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og íbúasamfélagið allt. Það er mikilvægt að við sem höfum áhrif á mótun einstaklinga og menntun gerum ráð fyrir því að þessi möguleiki er staðreynd í nútímasamfélagi og nýtum tækifærin sem tæknin býður upp á. Nýsköpun með aðstoð tækninnar afmáir öll landamæri í uppbyggingu nýrra fyrirtækja og jafnar tækifæri landsmanna til atvinnusköpunar. Unga fólkið gerir sér grein fyrir að allur heimurinn er undir. Trú á hugmynd getur fleytt fyrirtækjum langt og það þarf jafnvel ekki meira umfang en einn sæstreng til að flytja hugmyndir á milli landa. Með því að við hlúa að þessum sprotum mannauðar strax í upphafi aukast líkurnar á því að virðið og verðmætasköpun nýrra hugmynda verði eftir heima í héraði. Krafan um afnám gjaldeyrishafta er hér brýnt forgangsmál.
Kenna þarf tækninotkun
Stefnumótun í uppeldi og menntun sveitarfélagsins er mikilvæg forsenda fyrir framfarir á þessu sviði. Börn og unglingar eru að mótast af óheftum aðgangi að miklu rafrænu efni sem við fullorðna fólkið þurfum að aðstoða þau við að greina, meta og umgangast. Þetta er tiltölulega nýtt hlutverk sem okkur er falið og sjálf erum við að læra að fóta okkur í þessu breytta umhverfi. Kynslóðin sem er að vaxa upp er móttækileg fyrir tækninni og við gerum okkur grein fyrir að tæknin er að breyta samfélaginu. Hún er að breyta því hvernig við störfum, lærum, kennum og hegðum okkur. Í daglegu tali ber þessi þróun gjarnan á góma og við veltum vöngum yfir því hvert tæknin muni leiða okkur. Um leið og við lærum að nýta tæknina er mikilvægt að eygja þá möguleika sem í henni felast. Við þurfum að læra að umgangast tæknina til gagns og gera ráð fyrir henni í daglegu lífi á skynsamlegan hátt. Við eigum að stjórna tækninni en ekki hún okkur og það sem meira er, við þurfum að ala upp kynslóðir sem kunna að fóta sig í þessum tæknivædda heimi. Verkefnið er ærið.
Bergþóra Þórhallsdóttir.
Bergþóra er aðstoðarskólastjóri og sækist eftir 1. - 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri