Nýr sjóður fær 2,5 milljónir króna

Minjasafnið á Akureyri / mynd Karl Eskil
Minjasafnið á Akureyri / mynd Karl Eskil

Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar gaf ríkisstjórnin bænum 10 milljónir króna og var sérstaklega tekið fram að fjármunirnir skyldu renna til styrktar menningu og listum og/ eða til stofnana bæjarins sem áttu stórafmæli á síðasta ári.

Sérstök nefnd á vegum bæjarins leggur til að fjárhæðinni verði skipt með eftirfarandi hætti:

Lystigarðurinn á Akureyri 2,0 mkr.

Hlíð/Lögmannshlíð og þjónusta við aldraða á Akureyri 3,0 mkr.

Minjasafnið á Akureyri 2,5 mkr.

Spírur 2,5 mkr. (vinnuheiti) Verkefnið snýst um að mynda sjóð í samstarfi við einkaaðila. Sjóðurinn starfi í a.m.k. 3 ár og hafi það hlutverk að styðja ungt listafólk, sem er að stíga sín fyrstu skref, til framleiðslu á viðburðum sem m.a. verði fluttir á Akureyrarvöku. Sjóðurinn styrki jafnframt öfluga hópa tónlistar- og sviðslistafólks á heimaslóð til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir viðburði sem þeir framleiða.

Bæjarráð hefur samþykkt þessar tillögur nefndarinnar.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast