Nýr leiklistargagnrýnandi Vikudags

Sólveig Elín Þórhallsdóttir
Sólveig Elín Þórhallsdóttir

Akureyringurinn Sólveig Elín Þórhallsdóttir er nýr leiklistargagnrýnandi Vikudags. Hún lærði sýningarstjórn í Central School of Speech and Drama í London og hefur starfað sem sýningarstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar, í Borgarleikhúsinu og hjá Íslensku óperunni.

Sólveig Elín lauk 8. stigi í klassískum söng árið 2005 og hefur komið fram við ýmis tækifæri, bæði sem kórsöngvari og einsöngvari. Sólveig var annar stofnenda leikhópsins Rauði þráðurinn sem meðal annars sýndi leikverkið Best í heimi árið 2006 í Iðnó. Hún hefur starfað í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og var meðal annars sýningarstjóri á opnunarhátíð Hofs sumarið 2010. Auk þessa hefur hún starfað við gerð sjónvarpsþátta hjá Sögn ehf. og fengist talsvert við talsetningar og lestur ýmisskonar. Sólveig lauk B.A. gráðu í lögfræði síðastliðið vor og stundar nú meistaranám í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Vikudagur býður Sólveigu Elínu velkomna til starfa. Fyrsta verkið sem hún tekur fyrir er leikritið Borgarinnan, eftir Sögu Jónsdóttur. Leikritið var frumsýnt í Samkomuhúsinu síðasta fimmtudag.

Nýjast