Nýr heilbrigðisráðherra hefur stundað læknisstörf

Kristján Þór Júlíusson á skrifstofu heilbrigðisráðherra/mynd ME
Kristján Þór Júlíusson á skrifstofu heilbrigðisráðherra/mynd ME

„Já, reyndar hef ég stundað læknisstörf, ég var á árum áður stýrimaður og þeirra hlutverk er meðal annar að bregða sér í hlutverk læknis ef slys verða á hafi úti,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

„Ég hef til dæmis saumað í tvo skipsfélaga, sem slösuðust. Svo ég segi sjálfur frá, tókst það bærilega.

Þegar ég hitti þessa fyrrverandi „sjúklinga“ mína, eru þessi læknisverk mín gjarnan rifjuð upp. Síðan ber stýrimaðurinn líka ábyrgð á lyfjaskápnum um borð og eðli málsins samkvæmt þurfti maður af og til að finna réttu lyfin. Annars voru þetta upp til hópa hraustir strákar og skemmtilegir og sem betur fer urðu læknisverkin ekki fleiri á sjónum.“

 

Ítarlega er rætt við Kristján Þór í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag

Nýjast