Nýr björgunarbátur hjá Björgunarsveitinni Garðari

Mynd/Björgunarsveitin Garðar.
Mynd/Björgunarsveitin Garðar.
 Björgunarsveitin Garðar á Húsavík hefur fest kaup á nýjum björgunarbáti af gerðinni Seaver Pro 575. Báturinn er smíðaður í Frakklandi fyrr á þessu ári, hann er knúinn Yamaha FX 1900 jetski og er fullbúinn fyrir fjölbreytt björgunarverkefni á sjó. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebooksíðu Garðars.
 
Þar kemur einnig fram að báturinn hafi ekki fengið nafn og því sé leitað til almennings um að senda inn tillögur. Þau sem senda inn nafn sem verður fyrir valinu fá að launum skemmtisiglingu fyrir allt að fjóra.
Það verða svo félagar í Björgunarsveitinni Garðari sem kjósa um bestu tillöguna.

Nýjast