Nýja forystu í bæjarstjórn

Gunnar Gíslason
Gunnar Gíslason

Á laugardag fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Sjálfstæðisfólk í bænum vill vera hluti af kraftmiklu starfi sem hefur raunveruleg áhrif til góðs í samfélaginu og þar sem tekið er tillit til sjónarmiða allra íbúanna. Til að svo megi verða þarf öflugan og trúverðugan lista. Fólkið í flokknum getur gert slíkan lista að veruleika með virkri þátttöku í prófkjörinu og málefnavinnu í kjölfarið.
 

Í þeirri málefnavinnu vil ég að sérstök áhersla verði lögð á að styðja við og efla fyrirtækin í bænum, menningu og ferðaþjónustu, íþrótta-, tómstunda- og skólastarf, heilsugæslu og aðra velferðarþjónustu. Það vil ég gera með því að efla samráð við fyrirtæki, stofnanir og íbúa; leggja rækt við að hlusta og móta skýra sýn til lengri tíma. Ég óska eftir stuðningi þínum til að leiða það starf.

Sjálfstæðisflokkurinn var við stjórnvölinn á Akureyri á fyrsta tug þessar aldar. Á þeim tíma átti sér stað mikil uppbygging. Íbúum fjölgaði sem aldrei fyrr og Akureyri komst á kortið sem öflugt sveitarfélag með góða og mikla þjónustu við íbúa sína. Akureyri hefur verið og á að vera vænlegur kostur fyrir þá sem leita sér að búsetu í fjöslkylduvænu umhverfi.

Nú er lag fyrir flokkinn að ná aftur fyrri stöðu sem öflugasta stjórnmálaaflið í bænum.
Úrslitaáhrif mun hafa að allt sjálfstæðisfólk taki virkan þátt í prófkjörinu á laugardag og sýni í verki vilja sinn til að hafa áhrif. Þá skiptir einnig máli að hvetja sem flesta til að ganga í flokkinn og taka þátt í kjörinu. Þannig geta íbúarnir haft áhrif á það hvaða fólk skipar listann sem mun óhjákvæmilega hafa gríðarleg áhrif á það hvernig útkoman verður í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Ég óska eftir stuðningi þínum til að stýra Sjálfstæðisflokknum til forystu á ný á Akureyri og hvet þig til að taka þátt í prófkjörinu á laugardag.

 Gunnar Gíslason.

Höfundur er fræðslustjóri á Akureyri og sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Nýjast