Ný röntgentæki tekin í notkun á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Kristján Þór vígði nýtt röntkentæki, sem kostar 66 milljónir/mynd Karl Eskil
Kristján Þór vígði nýtt röntkentæki, sem kostar 66 milljónir/mynd Karl Eskil

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri í dag. Ráðherra ræddi við starfsfólk og kynnti sér starfsemina. Við það tækifæri voru formlega tekin í notkun ný röntgentæki en þau leysa af hólmi nær aldarfjórðungs gömul tæki. Nýju tækin eru af fullkomnustu gerð og myndgæði þeirra framúrskarandi. Þau stórbæta greiningarhæfni rannsókna og auka þægindi sjúklinga verulega. 

Tækjabúnaðurinn sem kostar 66 milljónir króna er fjármagnaður af Gjafasjóði sjúkrahússins og fara þessi kaup langt með að tæma þann sjóð. Til að koma tækjunum fyrir þannig að þau nýtist sjúklingum sem best þurfti að gera breytingar á húsnæði og vinnuaðstöðu myndgreiningardeildar fyrir um 11 milljónir króna.

Ánægjuleg heimsókn

“Það er alltaf ánægjulegt að fá ráðherra heilbrigðismála í heimsókn svo hann geti kynnt sér og séð það mikla og góða starf sem hér fer fram og nauðsyn þess að það geti haldið áfram að þróast og dafna, íbúum svæðisins til heilla,” segir Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Hann segir vel við hæfi að heilbrigðisráðherra hafi vígt hinn nýja myndgreiningarbúnað sem marki ákveðin þáttaskil í starfsemi sjúkrahússins. 

Nýjast