Nú förum við alveg að breytast í slím

Drinni & The Dangerous Thoughts treður upp á Akureyri Backpackers annað kvöld þegar hitað verður upp…
Drinni & The Dangerous Thoughts treður upp á Akureyri Backpackers annað kvöld þegar hitað verður upp fyrir Þegar Mannfólkið Breytist í Slím. Mynd/Aðsend.

Á morgun, fimmtudaginn 19. júní fara fram aðrir upphitunartónleikar af þremur fyrir menningarhátíðina Mannfólkið breytist í slím. Tónleikarnir fara fram á Akureyri Backpackers þar sem fram koma Drinni & The Dangerous Thoughts, Oscar Leone og DJ Mamalón. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.

Drinni & The Dangerous Thoughts er hugarfóstur Andra Kristinssonar sem hefur verið iðinn við tónlistarsköpun og tónleikahald undanfarin ár. Síðustu útgáfur Drinna eru breiðskífan “Hávær ljóð” sem kom út 2022 og smáskífan “Nihilism Manifest - Best að vera farinn” sem kom út síðla árs 2023. Lengst af bjó Drinni á Akureyri en gerir nú út frá Ghent í Belgíu og því ljóst að nærvera hans er mikill fengur fyrir Akureyringa þetta sumarið.

Oscar Leone er hliðarsjálf Péturs Óskars sem er ekki síður reynslumikill tónlistarmaður en hann hefur sent frá sér efni með reglulegu millibili síðustu ár, til að mynda “Train of Love” og “Hræddir litlir strákar” árið 2024. Auk þess að vera afkastamikill við tónlistarsköpun á Oscar Leone einnig farsælan feril að baki sem leikari í sjónvarpsþáttum og bíómyndum.

Hefð hefur skapast fyrir röð upphitunartónleika í aðdraganda menningarhátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím til að vekja athygli á verkefninu og koma hreyfingu á tónlistarsenu Akureyrar og þá sérstaklega það mengi sem syndir fjarri meginstraumum. Það er listakollektífið og útgáfufélagið MBS á Akureyri sem stendur að Mannfólkið breytist í slím en hátíðin hefur verið haldin allt frá árinu 2018 með sérstaka áherslu á listafólk úr nærumhverfinu þar sem frumleiki og fjölbreytni atriða hefur orðið aðalsmerki verkefnisins.

Röð atriða á upphitunartónleikunum 19. júní er:

21:00 - Oscar Leone

21:40 - Drinni & The Dangerous Thoughts

22:30 - DJ Mamalón

Nýjast