Halla Bergþóra Halldórsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustu- og fjármálasviðs Norðurorku, en Sigurður J. Sigðursson mun láta af starfi fjármálastjóra fyrir aldurs sakir. Halla hefur verið starfsmaður PricewaterhouseCoopers (PwC) á Akureyri og mun hefja störf hjá Norðurorku 1. október næstkomandi. Capacent sá um ráðningarferlið og alls sóttu 39 manns um starfið.