Norðurorka gefur bænum söguvörður

Bæjarstjórinn og forstjórinn við söguvörðuna
Bæjarstjórinn og forstjórinn við söguvörðuna

Norðurorka færði í dag Akureyrarbæ að gjöf söguvörður í tilefni 150 ára kaupstaðarafmælisins og fór fram athöfn í Innbænum af þessu tilefni. Söguvarðan sem Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri afhjúpuðu stendur á gatamótum Aðalstrætis og Hafnarstrætis á móts við hin sögufrægu hús Túliníusarhús og Höfnershús. 

Sú söguvarða er yfirlitsskilti sem sýnir mynd af Innbænum og vísar á aðrar söguvörður á því svæði. Sagt er frá gömlu Akureyri og upphafi þess að þar fór að myndast byggð. Á korti af bænum má sjá landið eins og það er í dag en einnig er sýnt hvar gamla strandlengjan var í árdaga. Í þessum áfanga verksins verður komið fyrir sex söguvörðum í Innbænum, yfirlitsskiltinu sem var afhjúpað í dag og fimm öðrum skiltum í Innbænum sem segja frá og sýna í myndum einstaka markverða staði; Fjöruna, Laxdalshús, Búðargil, Breiðgang (Broadway) og Spítalaveg. Sjón er sögu ríkari og þess má einnig geta að inn á hverju skilti eru svonefndir smartkóðar sem hægt er að nota til að sækja nánari upplýsingar inn á heimasíðu Akureyrarstofu. Auk ofangreindra sex söguvarða eru einnig í undirbúningi söguvörður sem koma á Oddeyrina og í Miðbæinn og eru þær jafnframt hluti af gjöf Norðurorku hf. til bæjarins í tilefni 150 ára afmælisins.

Nýjast