Norðurljós - Næturbirta norðursins

Minjasafnið á Akureyri opnar á morgun sýninguna Norðurljós - Næturbirta norðursins, sýningin samanstendur af ljósmyndum frá 2013  og málverkum frá 1899.

Málverkin eru eftir danska málarann Harald Moltke.  Hann var í hópi vísindamanna frá  dönsku veðurstofunni sem kom gagngert til Akureyrar 1899 til að rannsaka norðurljósin.

Norðurljósaleiðangur vísindamanna dönsku Veðurfræðistofunnar 1899-1900 til Akureyrar hefur legið í gleymskunnar dá áratugum saman.

Málverk Moltkes frá 1899 kallast á við magnaðar ljósmyndir Gísla Kristinssonar, áhugaljósmyndara. Þótt 114 ár skilji listamennina að eiga þeir það sameiginlegt að nálgast myndefnið af vísindalegri nákvæmni og gæða norðurljósin lífi, Moltke með með olíulitum, Gísli í gegnum linsu myndavélarinnar.

Nýjast