Það hefur mikla þýðingu fyrir Norðurland að vera í þriðja sæti á lista Lonely Planet. Ferðamenn eru duglegir við að leita sér upplýsinga um áfangastaði og ráðleggingar Lonely Planet eru mjög virtar. Við sjáum mikið af ferðamönnum sem ferðast eftir þessum listum og svona viðurkenning getur því haft mikil áhrif á ferðahegðun. Þessi listi sýnir okkur að Norðurland er komið á kortið sem áfangastaður og er það samstaða ferðaþjónustuaðila sem hefur skilað þessum árangri, segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Útgefendi ferðahandbókanna Lonely Planet birti í vikunni lista yfir þá tíu áfangastaði í Evrópu sem mælt er með að ferðamenn heimsæki í sumar. Norðurland er í þriðja sæti listans. Lonely Planet segir í umfjöllun sinni að Norðurland sé einn af þeim stöðum sem gæti orðið einn sá vinsælasti meðal ferðamanna á næstu árum og því verði fólk að grípa tækifærið núna.
Nánar er rætt við Arnheiði í prentútgáfu Vikudags