Norðurfrost gefur 300 lambalæri í dag

Glerártorg í morgun
Glerártorg í morgun

„Já, já , auðvitað má líta á þetta sem mistök, en við kusum að líta á björtu og jákvæðu hliðarnar og bregðast strax við,“ segir Sigurjón Guðmundsson markaðsstjóri Norðurfrosts á Akureyri. „Einhver misskilningur var á ferðinni og við tókum úr frosti nokkur hundruð fleiri lambalæri en beðið var um fyrir páska. Þrátt fyrir að salan hafi verið góð er staðan sú að við stöndum í dag uppi með um 300 ófrosin læri og við því þarf að bregðast. Salan er venjulega ekki mikil strax eftir páska, þannig að við ætlum einfaldlega að gefa þessi læri í dag. Fyrstir koma, fyrstir fá.“

Sigurjón segir að lærin verði afhent í anddyri Glerártorgs, hver og einn fái eitt læri.

„Við eigum auk þess 10 ára afmæli á þessu ári, þannig að þetta er líka hálfgerð afmælisgjöf. Við verðum búin að koma okkur fyrir á Glerártorgi um klukkan 13:00 og vonum að fólk taki þessu uppátæki okkar vel,“ segir Sigurjón.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast