Norðlenskur matur fyrir ferðafólk

„Við bindum miklar vonir við þetta. Hugmyndin er að fara dýpra í menningu Akureyrar en gengur og gerist,“segir Svava Ólafsdóttir ferðamálafræðingur á Akureyri. Svava mun ásamt hópi fólks bjóða erlendum ferðagestum upp á huggulega kvöldstund í sumar þar sem þeir fá að kynnast sögu Akureyrar meðleikrænni frásögn.

Verkefnið ber yfirskriftina „Kvöldstund með heimamönnum“ og fer fram einu sinni í viku á Kaffi Ilmi en einnig er hægt að panta skemmtunina. Boðið verður upp á akureyrskan mat og drykk og þá verða norðlenskir söngvar fluttir á meðan borðhaldi stendur. „Við erum enn að skoða hvaða mat við munum bjóða upp á. Það eru ýmsar hugmyndir í gangi eins og t.d. að hafa KEA skyr.

Konurnar á Kaffi Ilmi ætla að setja saman spennandi matseðil með norðlensku ívafi,“ segir Svava. Sýningin fer svo af stað með kaffi og eftirrétti. Svava hvetur fólk sem vill koma hugmyndum á framfæri um sögu, tónlist eða matarmenningu Akureyrar að hafa sambandi við sig í gegnum netfangið svavaola@gmail.com.

throstur@vikudagur.is

Nýjast