Þriðju Lestrarviku Arion banka og Disney-klúbbsins lauk um mánaðamótin. Markmið Lestrarvikunnar var að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar. Ekki skipti máli hvað var lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni, allt taldist með.
Rúmlega 1700 krakkar skráðu sig til leiks og var lestrarhestur Arion banka dreginn af handahófi úr þeim hópi. Sá heppni að þessu sinni var Trausti Freyr Sigurðsson, 8 ára Akureyringur, og fékk hann iPad í verðlaun.
Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjal og Andrésblað en auk þess var einn heppinn þátttakandi dreginn út á hverjum degi á meðan á lestrarvikunni stóð og fengu þeir bókavinning að launum. Í lok lestrarvikunnar voru dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem hafa einnig fengið afhentan glaðning.