Í Eyjafirði er nú verið að byggja fjós á tveimur bæjum, slíkt hefur ekki gerst í nokkur ár. Auk þess hefur gagnger endurnýjun átt sér stað í einu fjósi. Síðan eru nokkrir bændur að tæknivæða mjaltirnar með sjálfvirkum mjaltaþjónum. Kostnaðurinn hleypur örugglega á hundruðum milljóna króna, þegar allt er talið saman." Þetta segir Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóri Búgarðs, sem er ráðgjafaþjónusta bænda á Norðausturlandi. Á starfssvæði Búgarðs eru um 160 kúabændur, þar af eru um eitthundrað á Eyjafjarðarsvæðinu. Vignir segir að sjálfvirku mjaltaþjónarnir skapi umtalsverða vinnuhagræðingu.
Staða kúabænda er mjög misjöfn. Þeir sem skulda mikið berjast í bökkum og þeir geta tæplega leyft sér að tæknivæðast. Þeir sem eru ekki mjög skuldsettir geta aftur á móti leyft sér slíkt, enda er reksturinn hjá þeim fjárhagslega bærilegur. Minni búin eiga erfitt með að ráðast í fjárfrekar framkvæmdir, þar sem veltan leyfir einfaldlega ekki slíkt.
Kúabúum í Eyjafirði hefur fækkað nokkuð á undanförnum árum, en mjólkurkvótinn er hins vegar svipaður. Þau bú sem eftir eru hafa sem sagt stækkað.
Þegar bændur standa frammi fyrir endurnýjun tækjakosts og húsa, koma aðeins tvær leiðir til greina. Annað hvort er að hætta búrekstri eða fylgja tækninni. Sem betur fer er staðan hérna sú að margir hafa getu til að tæknivæðast, það sýna allar þessar framkvæmdir.
karleskil@vikudagur.is