Nói gefur málverk

Nói við málverkið sem hann gaf Sjúkrahúsinu á Akureyri
Nói við málverkið sem hann gaf Sjúkrahúsinu á Akureyri

Listamaðurinn Nói - Jóhann Ingimarsson - hefur fært  Sjúkrahúsinu á Akureyri málverk að gjöf. Verkið er um 20 metra langt og prýðir einn af göngum sjúkrahússins. 

Nói var á árum áður einn helsti frumkvöðull íslensks húsgagnaiðnaðar og starfaði við hönnun, framleiðslu og sölu húsgagna nær allan sinn starfsaldur. Hann hefur ávallt verið mjög virkur í listsköpun sinni. Til marks um það má nefna að enginn listamaður, hvorki núlifandi né látinn, státar af því að eiga fleiri útilistaverk vítt og breitt um Akureyri en Nói. Þá hefur hann haldið fjölmargar sýningar á málverkum og þrívíddarverkum, bæði einkasýningar og með þátttöku í samsýningum.

 

Nýjast