Níu frá KA í blaklandsliðinu

Efri röð frá vinstri: Filip Szewczyk þjálfari, Sævar Karl Randversson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór…
Efri röð frá vinstri: Filip Szewczyk þjálfari, Sævar Karl Randversson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór Ingi Karlsson.

Þjálfarar U19 landsliðanna í blaki, þeir Filip Szewczyk og Emil Gunnarsson, hafa valið leikmenn fyrir Norðurlandamót U19 sem fram fer í Kristiansand í Noregi um miðjan nóvember. Níu leikmenn frá blakdeild KA eru í hópnum, fimm drengir og þrjár stúlkur. Leikmennirnir eru Benedikt Rúnar Valtýsson, Gunnar Pálmi Hannesson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór Ingi Karlsson, Sævar Karl Randversson, Alda Ólína Arnarsdóttir, Hólmfríður Ásbjarnardóttir, Hafrún Hálfdánardóttir og Eva Sigurðardóttir. Í stúlknaliðinu er einnig Auður Anna Jónsdóttir sem er alin upp hjá KA og var einn besti leikmaður kvennaliðsins síðustu ár en hún spilar nú með Aftureldingu.

„Þessir leikmenn eru mjög ungir og áttu flestir einnig sæti í U17 landsliðinu. Þetta sýnir vel hversu góðum árangri þessir ungu leikmenn hafa náð og er mikil viðurkenning fyrir blakdeildina,” segir í tilkynningu frá blakdeild KA.

Nýjast