Nítján störf fyrir atvinnuleitendur

Eiríkur Björn Börgvinsson (t.v) og Guðbjartur Hannesson við undirritunina í dag í Menningarhúsinu Ho…
Eiríkur Björn Börgvinsson (t.v) og Guðbjartur Hannesson við undirritunina í dag í Menningarhúsinu Hofi. Mynd/Þröstur Ernir.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu í dag samkomulag um þátttöku Akureyrarbæjar í  „Vinnu og virkni-átaki til atvinnu 2013.“ Með samkomulaginu skuldbindur Akureyrarbær sig til að skapa allt að 19 sex til sjö mánaða störf á tímabilinu 1. desember 2012 til 1. október 2013.

Tilgangur samkomulagsins er að virkja atvinnuleitendur í sveitarfélaginu sem fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins á tímabilinu frá 1. september til 31. desember 2013, til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma þannig í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til óvinnufærni.

Til að ná því markmiði er gert ráð fyrir að í tengslum við átakið verði til að lágmarki 2.200 sex mánaða starfstengd vinnumarkaðsúrræði á landsvísu. Miðað er við að sveitarfélögin á landinu öllu skapi að lágmarki 660 starfstengd vinnumarkaðsúrræði eða 30% þeirra úrræða sem eiga að vera til á tímabilinu. Á móti er gert ráð fyrir að ríkið skapi 220 starfstengd vinnumarkaðsúrræði eða 10% og almenni vinnumarkaðurinn 1.320 eða 60%.  

Nýjast