Niðurskurðartímabilinu er lokið

Halla Björk Reynisdóttir Mynd:Karl Eskil
Halla Björk Reynisdóttir Mynd:Karl Eskil

„Akureyrarbær er ágætlega staddur fjárhagslega, miðað við önnur sveitarfélög landsins. Við erum þessar vikurnar að vinna að gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Ætli megi ekki segja að niðurskurðartímabilinu sé lokið," segir Halla Björk Reynisdóttir formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar. Hún segir að tekjur bæjarins nú aukast á nýjan leik. " Allar helstu áætlanir um tekjur og útgjöld hafa staðist að mestu. Þetta þýðir þó ekki að veskið verði opnað upp á gátt, aðhalds verður gætt eins og kostur er. Okkar hlutverk er að fara skynsamlega með þá fjármuni sem til ráðstöfunar eru hverju sinni.“

Í ítarlegu viðtali í prentútgáfu Vikudags segir Halla Björk að vel komi til greina að bæjarbúar kjósi um einstakar framkvæmdir á vegum bæjarins. „Þessi leið hefur verið farin í Reykjavík, með athyglisverðum árangri. Já, mér hugnast þessi leið mjög, en það hefur engin ákvörðun verið tekin í þessum efnum."

karleskil@vikudagur.is

Nýjast