Neysla læknadóps stóreykst

Götuverð á einni rítalín töflu getur farið upp í 5000 krónur.
Götuverð á einni rítalín töflu getur farið upp í 5000 krónur.

"Læknadóp er sér kapítuli út af fyrir sig þegar kemur að fíkniefnum og hefur neysla þess stóraukist undanfarin ár,“ segir Gunnar Jóhannes Jóhannsson rannsóknarfulltrúi á Akureyri. Af læknadópi ber hæst að nefna rítalín, en algengt götuverð á einni slíkri töflu er um 3.000 krónur en getur farið upp í 5.000 krónur. Einnig eru önnur örvandi efni misnotkuð ásamt róandi og sljóvgandi efnum.

"Þetta er vandamál sem hefur vaxið hvað mest undanfarin ár; misnotkun á læknadópi. Fólk sem misnotar þessi lyf lendir oft í höndunum á lögreglunni, því viðkomandi þarf stundum að brjótast inn og stela eða verða sér út um peninga með einum eða öðrum hætti til þess að fjármagna neysluna," segir Gunnar.

throstur@vikudagur.is

Nánar er fjallað um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast