Neyðarkall til heilbrigðisráðherra

Kristján Þór Júliusson
Kristján Þór Júliusson

Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis skorar á heilbrigðisráðherra að finna án tafar bráðabirgðalausn á neyðarástandi í geðþjónustu barna og unglinga á Norður- og Austurlandi. Í ályktun stjórnarinnar segir að eftir uppsögn barna- og unglingageðlæknis svæðisins sé núverandi fyrirkomulag algjörlega óboðlegt. Barna- og unglingageðdeildin í Reykjavík (BUGL) annaði vart álaginu fyrir. Því setji þessi viðbót þjónustuna á landsvísu í uppnám.

Neiðárástand

„Með niðurfellingu þessarar geðþjónustu skapast algjört neyðarástand á fjölda heimila sem ekki sér fyrir endann á. Þjáningin er ekki einungis bundin við börnin og unglingana sjálfa heldur eru aðstandendur einnig að örmagnast. Með hverjum deginum sem líður án þess að lausn sé í sjónmáli stigmagnast vandinn og álagið getur haft varanlegar afleiðingar fyrir heilsu aðstandenda. Íbúar svæðisins treysta á ráðherrann til að bregðast skjótt við þessu neyðarkalli,“ segir í ályktun stjórnar Geðverndarfélags Akureyrar

Nýjast