Nemendur í MA styrkja Hetjurnar

Svava Ósk Daníelsdóttir er í 2 A mynd/Karl Eskil
Svava Ósk Daníelsdóttir er í 2 A mynd/Karl Eskil

 Nemendur í 2. bekk A í Menntaskólanum á Akureyri stefna á að hlaupa boðhlaup frá Dalvík til Akureyrar á föstudaginn til styrktar Hetjunum, félagi langveikra barna á Norðurlandi.

Þetta er hluti af góðgerðardegi nemendanna og ákváðu þeir að leggja Hetjunum lið með þessum hætti.

Nemendurnir hafa undanfarna daga safnað áheitum í tengslum við hlaupið. Þeir sem vilja styrkja gott málefni geta lagt inn á bankareikning númer 0162-05-260955. Kennitala reikningsins er 280396-2579.

 

 

Nýjast