Samkvæmt könnun nemendafélags við Háskólann á Akureyri eru rúmlega 35% nemenda skólans ekki komnir með vinnu í sumar. Þetta er hátt hlutfall og það er titringur meðal námsmanna, segir Aníta Einarsdóttir varaformaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.
Sérstaklega er ólga hjá þeim sem eru fastir hérna fyrir norðan og komast ekkert í burtu til þess að vinna. Þeir sem svöruðu könnunni játandi hafa flestir fengið vinnu á Norðurlandi en það er stór hluti nemenda sem hefur fengið vinnu á höfuðborgarsvæðinu.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags
throstur@vikudagur.is