Jónína Björnsdóttir sér um matarkrók vikunnar og kemur með uppskrift að nautasteik eftir allt reykta kjötið um hátíðirnar.
Innbökuð Nautalund
fyrir 4-6
600-700 g nautalund
1 msk. smjör
½ tsk. salt
¼ tsk. svartur pipar
3-4 smjördeigsplötur
Egg til að pensla
Duxelle fylling
1 stk. karlottulaukur
200 g sveppir
1-2 msk. smjör
2 msk. tómatpuré
¼ tsk. svartur pipar
½ tsk. salt
1 eggjarauða
Aðferð:
Snöggsteikið kjötið á pönnu til að loka því, kryddið og kælið. Fínhakkið lauk og sveppi og steikið á lágum hita þar til allur vökvi hefur gufað upp, bætið í tómatpuré og kryddi og sjóðið þar til maukið er alveg þurrt, takið af hellunni og kælið bætið eggja rauðunni í og kælið að fullu. Smjördeigsplöturnar eru lagðar
saman og breiddar út í ferning ca 25x30 cm, Duxellemauki smurt á deigið, kjötið lagt ofaná og restinni af
maukinu smurt á kjötið. Penslið kantana á deiginu með eggi og víxlleggið því yfir kjötið, brettið síðan endana upp og passið að pakkinn sé alveg þéttur. Setjið pakkann í eldfast mót með samskeytin niður gerið 2-3 göt í deigið penslið með eggi og látið hvíla í 15-20 mín. Bakið í ofni við 200°C í 30-40 mín.
Gott er að hafa rauðvínssósu með og látum við því uppskrift af henni fylgja með.
Rauðvínssósa
1 stk. laukur (t.d karlottu)
1 hvítlauksrif
1 msk. smjör
1 ½ dl kjötkraftur
2 dl rauðvín
½ tsk. timjan
svartur pipar
1 lárviðarlauf
2 tsk. rifsberjahlaup
Aðferð:
Hakkið lauk og hvítlauk steikið í smjörinu bætið kryddi,kjötkrafti og helmingnum af rauðvíninu útí og
sjóðið niður til hálfs. Sigtið, bætið restinni af rauðvíninu útí og látið suðuna koma upp, bræðið smjör í potti hrærið hveiti saman við og bakið sósuna upp bragðbætið með rifsberjahlaupi.
Súkkulaðimústerta
200 g marsipan
2 egg
1 msk. kakó
Fylling:
150 g suðusúkkulaði
3 egg
1-2 msk. sterkt kalt kaffi
1 msk. koníak (má sleppa)
2 dl rjómi
Aðferð:
Rífið niður marsípanið setjið eggin saman við og þeytið vel bætið kakóinu við í lokin. Setjið í form og bakið
neðarlega í ofni við 175°í ca. 20 mín., kælið og setjið á fat. Bræðið súkkulaðið kælið aðeins og hrærið síðan einu eggi saman við, skiljið hin tvö eggin og hrærið gulurnar eina í einu saman við súkkulaðið síðan kaffið og e.t.v koníak. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið saman við þeytið síðan rjómann og blandið öllu vel saman. Setjið botninn aftur í formið hellið músinni yfir og frystið.