Mun líflegra en í fyrra

Mikill erill hefur verið í Vaglaskógi í Fnjóskadal í sumar og gestir mun fleiri í ár en í fyrra, enda hefur veðurblíðan verið með eindæmum góð í ár. „Þetta er búið að vera mjög gott í sumar eftir frekar óvenju slæma tíð í fyrra,” segir Sigurður Skúlason skógarvörður. „Hvað fjölda gistanátta varðar er ég hins vegar ekki með nákvæma tölu en hún er töluvert hærri á milli ára. Í seinni hluta júlí og í byrjun ágúst hefur verið einstaklega mikið fjör hérna.” Hann segir mest vera um innlenda ferðamenn en það færist hins vegar aukana að erlendir gestir gisti í skóginum.

Reikna má hins vegar með að umferðin í skóginn fari að minnka þegar líður á mánuðinn. „Þetta fer yfirleitt að róast eftir miðjan ágúst,” segir Sigurður. Opið verður í skóginum fram til næstu mánaðarmóta.

Nýjast