Múmínskógur tekur á sig mynd

Þeir Krzysztof, Mariusz og Arek komu frá Póllandi til að reisa kastalann nýja í Kjarnaskógi. Myndir/…
Þeir Krzysztof, Mariusz og Arek komu frá Póllandi til að reisa kastalann nýja í Kjarnaskógi. Myndir/Skógræktarfélag Eyfirðinga.

Nýr og glæsilegur 8 metra hár kastali hefur verið reistur í Kjarnaskógi. Hann er á svæði skammt frá Kjarnavelli. Nýir stígar voru lagðir að svæðinu og útbúinn ævintýralegur Múmínlundur þar sem kræklóttar greinar síberíulerkis setja dularfullan svip sinn á umhverfið.

 

„Við ætlum að útbúa sér svolítinn Múmínskóg inni í Kjarnaskógi og ég á frekar von á að hann muni njóta vinsælda,“ segir Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Fékk turninn upp í hendurnar

Forsagan er sú að félagið fékk turninn upp í hendurnar og þá varð að gera eitthvað gott úr því. Ákveðið var að fara alla leið, reisa kastalann á góðum stað með útsýni yfir Kjarnavöll en Ingólfur segir að með því að koma honum þar fyrir hafi síberíulerkilundurinn öðlast nýtt líf sem Múmínskógur, eins konar sjálfstæð eining innan Kjarnaskógar.

Mía litla er þegar til og hefur henni verið komið fyrir í Múmínskógi við nýja kastalann. Fleiri persónur úr Múmínævintýrunum munu síðar líta dagsins ljós og flytja inn í skóginn. „Við ætlum líka að smíða fleiri leiktæki, brú og skip og gera þetta svæðið að sannkölluðum ævintýraskógi,“ segir Ingólfur.

Sumarið fer vel af stað

Hann segir sumarið í Kjarnaskógi fara vel af stað og ánægjulegt að það hófst snemma.„Það skiptir miklu að nú í ár gátum við hafið vorverkin í lok apríl en ekki um 17. Júní eins og í fyrra. Það er því allt komið í fullan gang og gaman að sjá hversu margir sækja Kjarnaskóg heim á hverjum degi. Fjöldinn eykst má segja ár frá ári og svæðið nýtur mikilla vinsælda,“ segir Ingólfur.

Nýjast