Verið er að undirbúa sextán tónleika víðsvegar um landið í sumar og mun tónlistarfólkið sigla með eikarbátnum Húna II EA á milli staða. Ráðgert er að leggja af stað 4. júlí frá Akureyri og verða fyrstu tónleikarnir á Húsavík. Hringnum verður svo lokað með tónleikum á Akureyri 21. júlí.
Jón Þór Þorleifsson rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður sér um skipulagningu tónleikanna. Hann segir of snemmt að tjá sig um málið, þar sem enn eigi eftir að ganga frá ýmsum samningum.
Meðal annars er verið að ræða við RÚV um að gerð sjónvarpsþáttar og einnig við heimafólk á viðkomandi stöðum þar sem haldnir verða tónleikar.
Örn Elías Guðmundsson Mugison er meðal þeirra sem rætt er um að komi fram á tónleikunum og mun Mugison sigla með Húna II, ásamt öðrum sem standa að tónleikunum.
Afmæli Húna II
Húni ll er 130 tonna eikarbátur, smíðaður hjá skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1963. Húni ll er stærsta tréskip sinnar tegundar sem smíðað var hérlendis og er í mjög góðu standi og fullri notkun.
Alls voru smíðuð ellefu eikarskip sem mældust yfir 100 brt. og er Húni II eina skipið sem eftir er.
Í tilefni af fimmtíu ára afmælis Húna II fer skipið í hringferð um landið í sumar, farið verður frá Akureyri 11. mai. Skipið fer með öðrum orðum líklega í tvær hringferðir í sumar.
karleskil@vikudagur.is