MP banki kaupir Íslensk verðbréf

MP banki hefur gert tilboð í allt hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. og hefur tilskilinn meirihluti eigenda félagsins gengið að skilmálum tilboðsins. MP banki hf. á rætur sínar að rekja til ársins 1999 og starfa 130 starfsmenn í samstæðu bankans. Í apríl 2011 lögðu yfir 40 innlendir og erlendir fjárfestar MP banka til 5,5 milljarða króna í nýtt hlutafé og ný stjórn tók við. Forstjóri er Sigurður Atli Jónsson og formaður stjórnar er Þorsteinn Pálsson.

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og starfsmenn félagsins eru 20 talsins. Viðskiptavinir Íslenskra verðbréfa eru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, tryggingarfélög, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar. Hluthafar Íslenskra verðbréfa hf. eru ellefu talsins og eru sex hluthafar sem eiga meira en 5% hlut.

Nýjast