Í kvöld, fimmtudag kl. 20:00, stendur Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi, í samstarfi við Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, að Mottuboði. Sannkölluð veisla fyrir augu, eyru og munn. Stútfull skemmtidagskrá, listmunauppboð og tuttugu rétta matarveisla. Tilgangur Mottuboðsins er að vekja athygli á krabbameini karla, stuðla að forvörnum og styrkja starf Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Við innganginn verður Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis með kynningu á starfsemi sinni og fræðslu um krabbamein og krabbameinsleit.
Léttar veitingar verða í boði frá meðlimum í Klúbb Matreiðslumeistara á Norðurlandi, í samstarfi við fjölmarga birgja og veitingastaði á Norðurlandi.
Skemmtiatriði verða fjölmörg og má þar m.a. nefna Óskar Pétursson, Rúnar Eff, Karlakór Akureyrar Geysi, Hund í óskilum, þjóðþekkta hagyrðinga og uppboð Sigga Gumm á listmunum norðlenskra listamanna og íþróttatreyjum norðlenskra afreksmanna. Veislustjóri verður Sigurvin Fíllinn Jónsson.
Allir birgjar, matreiðslumenn, listamenn og aðrir styrkja málefnið með vinnu sinni og vörum.
Miðaverð er aðeins 3.000 kr. og rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.